Séra Laufey Brá Jónsdóttir prestur Fossvogsprestakalls
Biskup Íslands kynnti fyrir skömmu samstarf þjóðkirkjunnar og Minningarsjóðs Ólafar Töru. Á grundvelli þess samstarfs býðs baráttufólki gegn kynbundnu ofbeldi nú sérstök sálgæsla og handleiðsla hjá presti sem hefur langa reynslu af að starfa með þolendum ofbeldis.
Biskup Íslands hefur falið séra Laufeyju Brá Jónsdóttur presti í Fossvogsprestakalli ofangreint hlutverk, þ.e. að annast um verkefnið fyrir hönd þjóðkirkjunnar.
Séra Laufey Brá hefur gríðarlega reynslu og þekkingu sem nýtast mun í þessu verkefni. Hún hefur bæði unnið sem ráðgjafi í Kvennaathvarfinu og Bjarkarhlíð, auk þess sem hún hefur að baki viðbótarnám í sálgæslu.
Séra Laufey Brá hefur sína aðal skrifstofuaðstöðu í Grensáskirkju, en tekur á móti fólki bæði þar og í Bústaðakirkju. Einnig er hægt að panta viðtalstíma hjá henni með tölvupósti, laufey@kirkja.is og í símum 528-8510 og 695-5323.
Ef þú eða einhver sem þú þekkir glímir við sjálfsvígshugsanir eða sjálfskaðandi hegðun má alltaf hafa samband við Píeta samtökin, pieta.is og í síma 552-2218. Þá er hjálparsími Rauða krossins opinn allan sólarhringinn í síma 1717 og netspjall á heimasíðunni 1717.is.
Ríkissjónvarpið fjallaði um málið í fréttum fyrir skömmu. Hér má nálgast umfjöllun RÚV um málið.
Í Fossvogsprestakalli fögnum við þessu frumkvæði biskups og einnig því að Fossvogsprestakall skuli vera vettvangur framkvæmdarinnar og að séra Laufeyju Brá Jónsdóttur skuli hafa verið falið þetta ábyrgðarhlutverk.