Vegurinn til lífsins

Sunnudaginn 30. apríl nk. kl. 13 fer fram guðsþjónusta í Bústaðakirkju. Félagar úr Kammerkór Bústaðakirkju syngja undir stjórn Antoníu Hevesi, sem leikur á orgel/flygil. Séra Þorvaldur Víðisson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. 

Textar þessa sunnudags, sem er einn af sunnudögunum eftir páska í tímatali kirkjunnar, fjallar um hina nýju sköpun og veginn til lífsins.

Jesús segir m.a. í guðspjalli dagsins úr Jóhannesarguðspjalli: "Hjarta yðar skelfist ekki, trúið á Guð og trúið á mig." Svo segir hann jafnframt: "Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífið", sem er svar Jesú við spurningu Tómasar um hvernig lærisveinarnir ættu að geta þekkt veginn. 

Tómas lærisveinn hefur stundum verið kallaður lærisveinninn efasemdafulli. Einnig væri hægt að kalla hann lærisveininn sem nýtti sér til muna hina gagnrýnu hugsun. Spurningar hans í garð Jesú í guðspjöllunum er jafnan mjög mannlegar og viðbrögð hans við svörum Jesú mjög heiðarlegar. 

Verið hjartanlega velkomin til guðsþjónustu í Bústaðakirkju. 

Jesús Kristur er vegurinn, sannleikurinn og lífið

Umsjónaraðili/-aðilar