Aðventuhátíð á kirkjudegi Bústaðakirkju
Aðventuhátíð Bústaðakirkju fer fram fyrsta sunnudag í aðventu, 29. nóvember nk. kl. 17:00. Fyrsti sunnudagur í aðventu er kirkjudagur Bústaðakirkju, en kirkjan var vígð þann dag árið 1971. Bústaðakirkja er því 55 ára gömul í ár.
Borgarritari, Þorsteinn Gunnarsson, mun flytja hátíðarávarp.
Barnakór Fossvogs mun syngja undir stjórn Auðar Guðjohnsen og Þórunnar Díu Steinþórsdóttur.
Kammerkór Bústaðakirkju syngur undir stjórn Jónasar Þóris, organista. Ásamt honum verða í hljómsveit dagsins Bjarni Sveinbjörnsson á bassa, Einar Valur Scheving á trommur og Sigurður Flosason á saxafón.
Kammerkór Bústaðakirkju syngur undir stjórn Jónasar Þóris og svo munu einsöngvarar úr kórnum flytja einsöng.
Þórður Sigurðsson formaður sóknarnefndar flytur ávarp.
Séra Laufey Brá Jónsdóttir, séra Sigríður Kristín Helgadóttir og séra Þorvaldur Víðisson munu leiða stundina.
Messuþjónar aðstoða við innganginn, að afhenda kerti, og einnig við að tendra kertaljósin í lok stundarinnar.
Verið hjartanlega velkomin á aðventuhátíð Bústaðakirkju.
Barnakórinn syngur, ásamt Kammerkór Bústaðakirkju