Bangsablessun í barnamessu í Bústaðakirkju

Verið velkomin í barnamessu í Bústaðakirkju næsta sunnudag, 11. febrúar, kl. 11. Danni, Iðunn og Eva leiða stundina. Antonía Hevesi verður á flyglinum. 

Það verður svo sannarlega nóg um að vera. Við munum heyra söguna um Nóa og örkina sem hann smíðaði til að bjarga dýrunum. Barn verður borið til skírnar, sem er alltaf hátíðlegt. Svo bjóðum við bangsa sérstaklega velkomna, en við verðum með bangsablessun.

Verið hjartanlega velkomin í barnamesssu í Bústaðakirkju.