19
2024 maí

Guðsþjónustur sunnudagsins helgaðar Gulum september

Guðsþjónustur Fossvogsprestakalls, í Grensáskirkju kl. 11 og í Bústaðakirkju kl. 13, verða tileinkaðar Alþjóðaforvarnardegi sjálfsvíga og Gulum september, næstkomandi sunnudag 10. september. 

Hvað er Gulur september?

Alþjóðlegur forvarnardagur sjálfsvíga er 10. september. Guli liturinn er litur sjálfsvígsforvarna. Gulur september er samvinnuverkefni stofnana og félagasamtaka sem vinna saman að geðrækt og sjálfsvígsforvörnum. Á vef Landlæknisembættisins, sem heldur utan um verkefnið, má sjá að það er von undirbúningshópsins að Gulur september auki meðvitund fólks um mikilvægi geðræktar og sjálfsvígsfornvarna, og sé til merkis um kærleika, aðgát og umhyggju. Nánar má lesa um Gulan september á vef Landlæknisembættisins, sjá hér: Sjálfsvígsforvarnir | Ísland.is (island.is) 

Á þessum nótum verður einmitt helgihald dagsins í Fossvogsprestakalli. 

Umsjón með helgihaldi dagsins

Séra Eva Björk Valdimarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari í Grensáskirkju, ásamt messuþjónum. Ásta Haraldsdóttir organisti leikur og stjórnar Kirkjukór Grensáskirkju, sem syngur. 

Séra María G. Ágústsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari í Bústaðakirkju, ásamt messuþjónum. Jónas Þórir organisti leikur og stjórnar Kammerkór Bústaðakirkju sem syngur. 

Hægt verður að tendra á bænaljósi í helgihaldi kirknanna beggja, til minninga og fyrirbæna.

Útvarpsmessa dagsins á Rás eitt, verður einmitt úr Grensáskirkju, en í henni prédikar séra María G. Ágústsdóttir og þjónar ásamt messuþjónum. Ásta Haraldsdóttur organisti leikur og Kirkjukór Grensáskirkju syngur. Upptakan fór fram í vikunni og er þema helgihaldsins það sama: Gulur september. 

Hjartanlega velkomin

Verið hjartanlega velkomin til helgihaldsins í Fossvogsprestakalli.