19
2024 maí

Barnamessurnar eru í Bústaðakirkju alla sunnudaga kl. 11

Barnamessurnar í Bústaðakirkju verða alla sunnudaga kl. 11 í vetur. Jónas Þórir organisti, séra Eva Björk, séra María og séra Þorvaldur, prestar kirkjunnar, ásamt Daníel Ágúst djákna og leiðtogum leiða stundirnar í vetur. Biblíusögurnar, bænir barna, barnasálmarnir og lögin, brúðuheimsóknir og mynd fyrir hvern sunnudag verða m.a. á dagskránni. Samvera í safnaðarheimilinu að lokinni barnamessu, þar sem boðið er upp á kaffisopa, vatn, djús og ávexti, liti og iðju. Verið hjartanlega velkomin í barnamessurnar í Bústaðakirkju.