Æskulýðsstarfið í Grensáskirkju

Við finnum það í loftinu að sumarið nálgast. Við tökum því fagnandi með gleði og ætlum að leika okkur og hafa gaman í æskulýðsstarfinu á þriðjudaginn.

Æskulýðsstarfið er í Grensáskirkju þriðjudaga kl. 20-21.30. Allir unglingar í 8.-10. bekk eru velkomnir.

Umsjón með starfinu hafa Hilda, Viktoría og Danni.